16 Febrúar 2016 16:07

Brot 25 ökumanna voru mynduð í Ánanaustum í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Ánanaust í norðurátt, að Vesturgötu. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 374 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn, eða 7%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 74.

Vöktun lögreglunnar í Ánanaustum er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.