26 Apríl 2016 12:44

Brot 20 ökumanna voru mynduð í Ánanaustum í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Ánanaust í suðurátt, á móts við Holtsgötu. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 386 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn, eða 5%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 62 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar í Ánanaustum er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.