8 Janúar 2016 18:57

Brot 21 ökumanns var myndað í Ánanaustum í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Ánanaust í norðurátt, að bensínstöð Olís. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 390 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn, eða 5%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 62 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar í Ánanaustum er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.