19 Desember 2007 12:00

Brot 83 ökumanna voru mynduð í Arnarbakka í Breiðholti eftir hádegi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Arnarbakka í vesturátt að Dvergabakka. Á einni klukkustund fóru 140 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 59%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var rúmlega 48 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði og fjöldi barna fer um þennan stað á hverjum degi. Þrjátíu og einn ók á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók var mældur á 75.