9 Apríl 2010 12:00

Brot 35 ökumanna voru mynduð í Arnarbakka í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Arnarbakka í vesturátt, við Eyjabakka. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fór 91 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 38%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var rúmlega 47 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Ellefu óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 63.

Mælingarnar í dag eru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu. Í Arnarbakka var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf.