2 September 2010 12:00

Brot 85 ökumanna voru mynduð í Arnarbakka í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Arnarbakka í vesturátt, við Dvergabakka. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 144 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 59%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 48 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Þrjátíu og einn ók á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 66.

Vöktun lögreglunnar í Arnarbakka, en við götuna er Breiðholtsskóli, er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.