24 Maí 2011 12:00

Brot 46 ökumanna voru mynduð í Arnarbakka í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Arnarbakka í vesturátt, við Dvergabakka. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 78 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 59%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 47 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Tólf óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 67. Þrír ökumenn, sem fóru þarna um í morgun, eiga ökuleyfissviptingu yfir höfði sér. 

Þess má geta að lögreglan hefur verið við hraðamælingar á þessum stað nokkrum sinnum áður og oftar en ekki hefur brotahlutfallið verið mjög hátt, líkt og var í dag en meðalhraði hinna brotlegu hefur verið um 48 km/klst.