9 Maí 2012 12:00

Brot 40 ökumanna voru mynduð í Arnarbakka í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Arnarbakka í vesturátt, við Dvergabakka. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 84 ökutæki þessa akstursleið og því ók tæplega helmingur ökumanna, eða 48%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 46 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Tíu óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 58. 

Vöktun lögreglunnar í Arnarbakka er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.