6 Maí 2015 17:41

Brot 40 ökumanna voru mynduð í Arnarbakka í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Arnarbakka í vesturátt, á móts við Eyjabakka. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 80 ökutæki þessa akstursleið og því ók helmingur ökumanna, eða 50%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 47 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Fjórtán óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 75.

Vöktun lögreglunnar í Arnarbakka er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.