21 September 2022 15:38

Brot 25 ökumanna voru mynduð í Arnarbakka í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Arnarbakka í vesturátt, við Dvergabakka. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 78 ökutæki þessa akstursleið og því ók tæplega þriðjungur ökumanna, eða 32%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 55.

Vöktun lögreglunnar í Arnarbakka er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.