8 Maí 2009 12:00

Fjörutíu og níu voru staðnir að hraðakstri í Arnarbakka í Reykjavík í dag en þar var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf. Mælingarnar í dag eru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu.

Eins og fyrr sagði voru brot 49 ökumanna mynduð í Arnarbakka en fylgst var með ökutækjum sem var ekið í vesturátt, gegnt Eyjabakka. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 86 ökutæki þessa akstursleið og því óku 57% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 48 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sautján óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 67.

Fyrir ári var lögreglan við hraðamælingar á þessum sama stað í Arnarbakka og þá óku sömuleiðis 57% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða en þá var svipuð umferð um götuna (94 ökutæki). Meðalhraði hinna brotlegu í fyrra var líka 48 km/klst.