21 Júní 2010 12:00

Brot 25 ökumanna voru mynduð í Arnarhöfða í Mosfellsbæ á þriðjudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Arnarhöfða í norðurátt, við Fálkahöfða. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 50 ökutæki þessa akstursleið og því ók helmingur ökumanna, eða 50%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Fjórir óku á 50 km hraða eða meira. 

Mælingarnar á þriðjudag eru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu. Í Arnarhöfða var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf.

Fyrir ári var lögreglan við hraðamælingar á þessum sama stað í Arnarhöfða en þá óku líka hlutfallslega mjög margir, eða 54%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Árið áður (2008) var niðurstaðan hinsvegar 10%.