14 Júní 2012 12:00

Brot 23 ökumanna voru mynduð í Arnarhöfða í Mosfellsbæ í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Arnarhöfða í norðurátt, við Fálkahöfða. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 48 ökutæki þessa akstursleið og því ók tæplega helmingur ökumanna, eða 48%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sex óku á 50 km hraða eða meira. 

Vöktun lögreglunnar í Arnarhöfða er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu. Við fyrri hraðamælingar lögreglunnar á þessum stað hefur brotahlutfallið verið 41-54%.

Vöktun lögreglunnar í Arnarhöfða er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu. Við fyrri hraðamælingar lögreglunnar á þessum stað hefur brotahlutfallið verið 41-54%.