12 Júní 2014 12:00

Brot 13 ökumanna voru mynduð í Arnarhöfða í Mosfellsbæ í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Arnarhöfða í norðurátt, við Fálkahöfða. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 37 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 35%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. 

Vöktun lögreglunnar í Arnarhöfða er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.