12 Júní 2015 17:49

Brot 13 ökumanna voru mynduð í Arnarhöfða í Mosfellsbæ í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Arnarhöfða í norðurátt, á móts við Fálkahöfða. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 45 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en fjórðungur ökumanna, eða 29%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 52.

Vöktun lögreglunnar í Arnarhöfða er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.