1 Júlí 2008 12:00

Brot þriggja ökumanna voru mynduð í Arnarhöfða í Mosfellsbæ í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Arnarhöfða í norðurátt, við Spóahöfða. Á einni klukkustund, fyrir hádegi,  fór 31 ökutæki þessa akstursleið og því voru flestir ökumenn til fyrirmyndar. Bílar þessara þriggja sem óku of hratt eða yfir afskiptahraða mældust á um 40 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði.