18 Apríl 2012 12:00

Brot 3 ökumanna voru mynduð í Arnarsmára í Kópavogi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Arnarsmára í vesturátt, að Bollasmára. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 11 ökutæki þessa akstursleið og því var brotahlutfallið 27%. Hinir brotlegu óku allir á 50 km hraða eða meira en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 54. 

Vöktun lögreglunnar í Arnarsmára er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.