14 Apríl 2016 14:16

Brot 2 ökumanna voru mynduð í Arnarsmára í Kópavogi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Arnarsmára í vesturátt, á móts við Arnarsmára 20. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 15 ökutæki þessa akstursleið. Hinir brotlegu mældust á 48 og 59 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar í Arnarsmára er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.