16 Apríl 2009 12:00

Sjö voru staðnir að hraðakstri í Arnarsmára í Kópavogi í dag en þar var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf. Mælingarnar í dag eru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu.

Eins og fyrr sagði voru brot 7 ökumanna mynduð í Arnarsmára en fylgst var með ökutækjum sem var ekið í vesturátt, að Bollasmára. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 13 ökutæki þessa akstursleið og því óku 54% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 48 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Þrír óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 54.

Fyrir ári var lögreglan við hraðamælingar á þessum sama stað í Arnarsmára en þá var niðurstaðan allt önnur og betri. Þá fóru 10 ökutæki þessa akstursleið en aðeins einu þeirra var ekið of hratt eða yfir afskiptahraða.