23 Nóvember 2021 08:59

Brot 22 ökumanna voru mynduð í Austurbergi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Austurberg í suðurátt, á móts við Hólabrekkuskóla. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 148 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 15%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 48.

Vöktun lögreglunnar í Austurbergi er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að rigning var á meðan hraðamælingunni stóð.