9 Mars 2022 12:14

Brot 9 ökumanna voru mynduð í Austurbergi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Austurberg í suðurátt, á móts við Hólabrekkuskóla. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fór 101 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 9%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 40 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 43.

Vöktun lögreglunnar í Austurbergi er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.