24 Ágúst 2022 16:09

Brot 5 ökumanna voru mynduð í Austurbergi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Austurberg í suðurátt, á móts við Hólabrekkuskóla. Á einni og hálfri klukkustund, fyrir hádegi, fóru 266 ökutæki þessa akstursleið og því óku mjög fáir ökumenn, eða 2%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 49.

Vöktun lögreglunnar í Austurbergi er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.