4 Júní 2015 17:35

Brot 34 ökumanna voru mynduð í Austurbergi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Austurberg í suðurátt, á móts við Hólabrekkuskóla. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 78 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 44%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sjö óku á 50 km hraða eða meira.

Vöktun lögreglunnar í Austurbergi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.