18 Ágúst 2015 17:01

Brot 52 ökumanna voru mynduð í Austurbergi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Austurberg í suðurátt, við Hólabrekkuskóla. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 133 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 39%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 55.

Vöktun lögreglunnar í Austurbergi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.