23 Ágúst 2018 15:58

Brot 37 ökumanna voru mynduð í Austurbergi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Austurberg í suðurátt, á móts við Hólabrekkuskóla. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 162 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en fimmtungur ökumanna, eða 23%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 53.

Vöktun lögreglunnar í Austurbergi er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.