24 Apríl 2015 10:38

Brot 66 ökumanna voru mynduð í Austurbergi í Reykjavík á miðvikudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Austurberg í suðurátt, á móts við Hólabrekkuskóla. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fór 191 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 35%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 51.

Vöktun lögreglunnar í Austurbergi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.