11 Maí 2016 09:54

Brot 30 ökumanna voru mynduð í Austurkór í Kópavogi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Austurkór í austurátt, við Akrakór. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 49 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 61%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 47 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Átta óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 65.

Vöktun lögreglunnar í Austurkór er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.