28 September 2016 18:52

Brot 8 ökumanna voru mynduð í Bakkavör á Seltjarnarnesi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Bakkavör í suðurátt, að Bakkavör 20. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 17 ökutæki þessa akstursleið og því ók hátt í helmingur ökumanna, eða 47%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 50.

Vöktun lögreglunnar í Bakkavör er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.