29 September 2016 17:46

Brot 8 ökumanna voru mynduð í Bakkavör á Seltjarnarnesi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Bakkavör í norðurátt, að Bakkavör 20. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 19 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 42%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 54.

Vöktun lögreglunnar í Bakkavör er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.