5 Mars 2020 09:51

Brot 48 ökumanna voru mynduð í Baugshlíð í Mosfellsbæ í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Baugshlíð í suðurátt, á móts við Lágafellsskóla. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 93 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 52%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Fimm óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 59.

Vöktun lögreglunnar í Baugshlíð er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að hálfskýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.