28 Ágúst 2020 15:20

Brot 62 ökumanna voru mynduð í Baugshlíð í Mosfellsbæ í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Baugshlíð í suðurátt, á móts við Lágafellsskóla. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 135 ökutæki þessa akstursleið og því ók hátt í meirihluti ökumanna, eða 46%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Níu óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 57.

Vöktun lögreglunnar í Baugshlíð er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.