6 Október 2010 12:00

Brot 22 ökumanna voru mynduð í Baugshlíð í Mosfellsbæ í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Baugshlíð í norðurátt, við Lágafellsskóla. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 107 ökutæki þessa akstursleið og því ók um fimmtungur ökumanna, eða 21%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 53.

Vöktun lögreglunnar í Baugshlíð er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.