11 Nóvember 2014 12:00

Brot 7 ökumanna voru mynduð í Baugshlíð í Mosfellsbæ í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Baugshlíð í norðurátt, við Arnarhöfða. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 35 ökutæki þessa akstursleið og því ók fimmtungur ökumanna, eða 20%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 50.

Vöktun lögreglunnar í Baugshlíð er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.