10 Nóvember 2015 13:51

Brot 18 ökumanna voru mynduð í Baugshlíð í Mosfellsbæ í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Baugshlíð í norðurátt, á móts við Lágafellsskóla. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 82 ökutæki þessa akstursleið og því ók rúmlega fimmtungur ökumanna, eða 22%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 55.

Vöktun lögreglunnar í Baugshlíð er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.