30 Ágúst 2017 15:40

Brot 58 ökumanna voru mynduð í Baugshlíð í Mosfellsbæ í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Baugshlíð í suðurátt, á móts við Lágafellsskóla. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 85 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en helmingur ökumanna, eða 68%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 47 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Nítján óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 59.

Vöktun lögreglunnar í Baugshlíð er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.