6 Október 2017 16:37

Brot 54 ökumanna voru mynduð í Baugshlíð í Mosfellsbæ á miðvikudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Baugshlíð í suðurátt, á móts við Lágafellsskóla. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 97 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 56%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 46 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Þrettán óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 62.

Vöktun lögreglunnar í Baugshlíð er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á með hraðamælingunni stóð.