4 Júní 2009 12:00

Tíu voru staðnir að hraðakstri í Baugshlíð í Mosfellsbæ í gær en þar var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf. Mælingarnar í gær eru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í umdæminu.

Eins og fyrr sagði voru brot 10 ökumanna mynduð í Baugshlíð en fylgst var með ökutækjum sem var ekið í norðurátt, við Arnarhöfða. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 86 ökutæki þessa akstursleið og því óku 12% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 49.

Fyrir ári var lögreglan við hraðamælingar á þessum sama stað í Baugshlíð og þá óku 14% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða en þá var minni umferð um götuna (64 ökutæki). Meðalhraði hinna brotlegu í fyrra var 42 km/klst.