2 Júlí 2008 12:00

Brot níu ökumanna voru mynduð í Baugshlíð í Mosfellsbæ í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Baugshlíð í norðurátt, við Arnarhöfða. Á einni klukkustund, fyrir hádegi,  fóru 64 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 14%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði.  Sá sem hraðast ók mældist á 45.