23 Febrúar 2023 12:16

Brot 12 ökumanna voru mynduð í Bjarkarholti í Mosfellsbæ í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Bjarkarholt í vesturátt, við Framhaldsskólann. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 95 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 13%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 40 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 45.

Vöktun lögreglunnar í Bjarkarholti er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.