25 Júlí 2013 12:00

Brot 3 ökumanna voru mynduð í Bólstaðarhlíð í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Bólstaðarhlíð í austurátt. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 18 ökutæki þessa akstursleið og því óku fáeinir ökumenn, eða 17%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 41 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. 

Vöktun lögreglunnar í Bólstaðarhlíð er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en ábendingar höfðu borist um hraðakstur á þessum stað.