4 Mars 2008 12:00

Brot fjórtán ökumanna voru mynduð í Bólstaðarhlíð í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Bólstaðarhlíð í vesturátt, þ.e. á milli Stakkahlíðar og Lönguhlíðar. Á einni klukkustund, eftir hádegi,  fóru 52 ökutæki þessa akstursleið og því ók rúmlega fjórðungur ökumanna, eða 27%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði.  Sá sem hraðast ók mældist á 46.

Eftirlit lögreglunnar í Bólstaðarhlíð kom í kjölfar ábendinga frá íbúum í hverfinu. Þeir höfðu áhyggjur af hraðakstri í götunni. Niðurstaða vöktunarinnar sýnir að ábendingarnar voru fyllilega réttmætar.