27 September 2017 14:59

Brot 7 ökumanna voru mynduð í Brautarholti í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Brautarholt í vesturátt, við Traðarholt. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fór 31 ökutæki þessa akstursleið og því ók rúmlega fjórðungur ökumanna, eða 23%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 57.

Vöktun lögreglunnar í Brautarholti er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu,en þess má geta að skýjað og blautt var á með hraðamælingunni stóð.