14 Ágúst 2012 12:00

Brot 17 ökumanna voru mynduð í Breiðagerði í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Breiðagerði í austurátt, við Teigagerði. Á einni klukkustund, síðdegis, fóru 52 ökutæki þessa akstursleið og því ók þriðjungur ökumanna, eða 33%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 53. 

Vöktun lögreglunnar í Breiðagerði er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en ábendingar höfðu borist um hraðakstur á þessum stað. Þess má jafnframt geta að við hraðamælingar á sama stað í byrjun júlí var brotahlutfallið 41%.