2 Júlí 2012 12:00

Brot 9 ökumanna voru mynduð í Breiðagerði í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Breiðagerði í vesturátt, við Teigagerði. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 22 ökutæki þessa akstursleið og því ók hátt hlutfall ökumanna, eða 41%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 58. 

Vöktun lögreglunnar í Breiðagerði er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en ábendingar höfðu borist um hraðakstur á þessum stað.