15 Nóvember 2012 12:00

Brot 14 ökumanna voru mynduð í Breiðumýri á Álftanesi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Breiðumýri í norðurátt, í námunda við leikskólana Holtakot og Krakkakot, en  Álftanesskóli er líka á þessu svæði. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 23 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 61%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 46 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Þrír óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 53.

Vöktun lögreglunnar í Breiðumýri er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en ábendingar höfðu borist um hraðakstur á þessum stað.