16 Maí 2013 12:00

Brot 22 ökumanna voru mynduð í Brekkuási í Hafnarfirði í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Brekkuás í norðvestur, á móts við Brekkuás 9. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 27 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 81%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 48 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sjö óku á 50 km hraða eða meira.

Vöktun lögreglunnar í Brekkuási er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en ábendingar höfðu borist um hraðakstur á þessum stað.