1 Október 2014 12:00

Brot 4 ökumanna voru mynduð í Bugðu í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Bugðu í vesturátt, við Lækjarvað. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 18 ökutæki þessa akstursleið og því ók rúmlega fimmtungur ökumanna, eða 22%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 47 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 54. 

Vöktun lögreglunnar í Bugðu er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.