11 Mars 2013 12:00

Brot 36 ökumanna voru mynduð í Dalsmára í Kópavogi á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Dalsmára í austurátt, við Lækjarsmára. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 93 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 39%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Fimm óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 58.

Vöktun lögreglunnar í Dalsmára er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en ábendingar höfðu borist um hraðakstur á þessum stað.