19 Mars 2014 12:00

Brot 45 ökumanna voru mynduð í Dalsmára í Kópavogi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Dalsmára í vesturátt, við Lækjarsmára. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 79 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 57%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 46 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 66.

Vöktun lögreglunnar í Dalsmára er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.