18 Mars 2015 10:43

Brot 37 ökumanna voru mynduð í Dalsmára í Kópavogi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Dalsmára í vesturátt, við Lækjarsmára. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 73 ökutæki þessa akstursleið og því ók um helmingur ökumanna, eða 51%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 46 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Átta óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 57.

Vöktun lögreglunnar í Dalsmára er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.